OG ÞÁ ER ÉG FLUTT
2 mars.. ég flutti loksins rúmið mitt yfir :) Og sjónvarpið, tölvuna og DVD spilarann.. og þá er ég loksins flutt..
Núna er ég búin að vera hérna í 1,5 tíma.. að horfa á Pirates of the Carabien - The curse of the black pearl.. og hef það svosem ágætt.. þetta er svoldið undarleg tilfinning.. að vera ekki að fara heim.. :) En, held þetta verðu bara fínt..
Á reyndar eftir að gera alveg heilan helling..
Ég sá sófa í dag sem ég VERÐ að fá! VERÐ VERÐ VERÐ! *þrjósk*
Skrifa meira seinna.. ég vona bara að ég geti lúllað í kvöld :o
Símafyrirtækin eru hálfvitar
Okei, núna er ég að fara að flytja í holu .. :) Og þar vantar mig netið!! Það vill svo óskemmtilega til að það er ekki inntengi fyrir símasnúru, en það er víst ekkert vandamál, ég þarf bara símvirkja og tengja í kassann.. eða eitthvað. Ég á símalínu í blokkinni.. og núna er ég bara að bíða eftir símvirkja.. og er NOTABENE BÚIN AÐ BÍÐA Í VIKU!! hversu LÉLEG er sú þjónusta???
Ég ætlaði upphaflega að vera hjá Hive, en þeir voru bara svo DRULLUDÝRIR að það var engu lagi líkt! OgVodafone bauð betur, þannig ég ætla þangað!
Hjá Hive var ég búin að panta ýmislegt, ég var EKKI búin að skrifa undir, ég var EKKI búin að sækja router, og ég var ekki búin að gera neitt!!!!!!!!!!! Svo líður smá tími. Ég læt þá vita um að ég ætla ekki að vera með netið hjá þeim.. og þa byrjar vesenið!
Þeir byrja að senda mér sms.. umað núna sé ég nettengd (þótt það hafi enginn á þeirra vegum reddað neinu sem vantaði að redda og þeir hafa ekki einu sinni menn í það ) og að ég þurfi að fara að fá mér heimasíma til að tengjast línunni ( og ég sagði þeim að ég ætlaði EKKI að vera með heimasíma, og þeir sögðu að það væri ekkert mál) ég er alltaf að hringja.. og það er alltaf bara : já ég hef samband eftir nokkrar mínútur.. t.d. í dag, hringdi ég kl 11:43 og þá fékk ég þetta.. "hringi eftir smá" og núna er kl 19:04 og ég hef ekki ennþá fengið þetta umtalaða símtal..
ÞETTA ER ÞAÐ LÉLEGASTA SEM ÉG VEIT!!!!! ÉG ER ÓGEÐSLEGA PIRRUÐ.
Hið fullkomna Eiginkonu test
Þar eru þær spurningar sem karlmaður þarf að vita svarið við áður en hann ákveður að ganga í hnapphelduna.. allavega hér fyrr á tímum.. Þannig stelpur.. til að verða góðar eiginkonur.. þá þurfiði að kunna allt á þessum lista!!
Svo úr því verði kaka ? já það kann ég
Ertu nú alveg viss um ? Já það er ég
Eða ertu ef til vill að gabba mig?
Kanntu mat að sjóða? Já það kann ég
Og gestum heim að bjóða? Já það kann ég
Ertu nú alveg viss um ? Já það er ég
Eða ertu ef til vill að gabba mig?
Kanntu ber að tína ? Já það kann ég
Og stoppí sokka mína ? Já það kann ég
Ertu nú alveg viss um ? Já það er ég
Eða ertu ef til vill að gabba mig?
Kanntu að sjóða fiskinn ? Já það kann ég
Og færann upp uppá diskinn ? Já það kann ég
Ertu nú alveg viss um ? Já það er ég
Eða ertu ef til vill að gabba mig?
Kanntu að vagga barni? Já það kann ég
og prjóna sokka úr garni? Já það kann ég
Ertu nú alveg viss um ? Já það er ég
Eða ertu ef til vill að gabba mig?
Britney Spears ....
Það þarf engan snilling til að komast að því að Britney Spears er ekki bjartasta peran á jólaseríunni....
The most painful thing I have ever experienced was that breakup. We were together so long and I had this vision. You think you're going to spend the rest of your life together. Where I come from, the woman is the homemaker, and that's how I was brought up -- you cook for your kids. -Britney Spears um sambandsslitin við Justin Timberlake...
Tony Blair? I've never heard of him either. Who is he?
I've got an amazing group of people around me and my family at home. If I don't make my bed and wash the dishes at home, I'm in trouble - - hvernig skildi vera tekið í dópneyslu og útungun barna eins og ekkert sé sjálfssagðara...
I've never really wanted to go to Japan. Simply because I don't like eating fish. And I know that's very popular out there in Africa. - - HVERSU BRIGHT...

Gleraugu
Ég rétti þau ekki
Þau hafa verið skökk lengi
Það tekur því ekki að laga þau
Ég vinn með einhverfum...
Þannig.. þau mundu skekkjast samdægurs..
Mér finnst það "sætt"
Heath Ledger

Í dag fannst Heath Ledger látinn :(
Hann var 28 ára gamall :/
Hann var 185 cm á hæð
Hann var ÓGEÐSLEGA sætur..
R.I.P. Heath Ledger ;*
Áramótaheit
Þar sem það er mjög greinilegt að áramótaheitin standast ALDREI.. þá setti ég nokkur..
1. Ég ætla að fitna.. mikið
2. Ég ætla að halda áfram að vera einhleyp
3. Ég ætla að missa vinnuna
4. Ég ætla að vera fátæk

Annars er ég að flytja í byrjun febrúar..
Svo fékk ég ágætt tilboð í kvöld... Vinkonu mína langar út í skóla, en hún vill ekki fara ein.. Ég er alvarlega að spá í að fara með henni.. skella mér í háskóla í Dk, eða á öðrum ókönnuðum stöðum =) Núna er bara að vinna hvað mar vill læra, hvert mar vill fara, og finna skóla =)
Annars er ég byrjuð á 16 vikna namskeiði í vinnunni.. og.. svo var ég send á sjálfsvarnarnámskeið.. það var ýkt gaman :D
Ég skrifa meira.. innihaldsríkara seinna =) Bæ og góða nótt
Voða spes
Þar á saksóknari í útlöndum segist að hann hafi misnotað fleirri stráka en bara þennan eina sem hann var dæmdur fyrir !! Þá er spurning, hverju á maður að trúa ? Kannski hafa fjölmiðlarnir sín áhrif en ef ég ætti börn væri ég ekki heit fyrir að hafa þennan gutta nálægt.
Kannski er það, akkúrat það sem þessi saksóknari vill.
Hvað haldið þið? Hvor er að ljúga....
http://www.visir.is/article/20080110/FRETTIR01/80110102
Hálfvitar
Fyrir utan að Íslendingar séu kaldasta, bitrasta og þurrasta fólk sem til er í heiminum... þá erum við líka það AL heimskasta.
Ef við byrjum á íbúðarverðinu. Þegar móðir mín keypti íbúðina sem við búum í núna árið 1989, var hún metin á 5,8.. FIMM KOMMA ÁTTA.. pælum aðeins í því ..
Núna getur maður fengið 2ja herbergja íbúð, á versta stað í bænum, fyrir ofan fyllibyttur sem berja hvor aðra, og party allar helgar, á hvað.. segjum 25 -30 milljónir.. veistu, nei takk ég held bara ekki.
Stóra spurningin er, afhverju hækkaði þetta svona ? Svarið er : Því íslendingar eru það AL heimskasta sem til er í heiminum.
Fyrir nokkum árum ákváðu bankarnir að þeir vildu vera með í því að græða á sölu hýbýla. Great... Þannig þeir ákváðu að byrja að bjóða uppá 100% lán. Sem þýddi að næstum hver sem var gat labbað inn í banka, og gengið út 50 milljónum "ríkari". þá náttúrulega sjá fasteignasalar og íbúðaeigendur ljós í myrkri og ákveða að hækka aðeins verðin, því fólk getur hvort sem er alltaf fengið bara meira lán. Awesome.
ÞAnig gengur þetta.. on and on and on.. Ass.
Er fólk VIRKILEGA það heimskt ? Bara.. realy ? að það haldi að það nái að borga ég veit ekki.. segjum 35 milljónir á 40 árum..?
Það gera .. 875000 á ári
og.. sem eru 73 þús á mánuði..
Þarna bæti ég ENGUM sköttum á þetta.. bara hrein tala útfrá höfuðstólnum
Nota bene, flestir tóku meira en 35 milljón króna lán.
Núna er þetta komið útí því að enginn af minni kynslóð, sem erum að hefja lífið, höfum efni á því að kaupa okkur íbúð. Hvaða heilvita 21 árs gamall krakki hefur efni á því að kaupa sér margra TUGA milljóna smáíbúð.. ég meina.. come on.. Ekki erum við orðin skurðlæknar, eða hæstaréttalögfræðingar eða einhverjior sem fá rosa góð laun, annað hvort erum við í skóla, eða í illa borguðum vinnum. og hana nú! Fyrir utan einstaka beyglur sem voru heppin og fengu próflaust vel launað starf.
Þannig til hamingju Bankar, síðasta kynslóð og Alþingi (ég er viss um að þeir koma málinu við, en mér er illa við þá þannig þeir fá að vera með ) þið eruð búinn að skemma möguleika komandi kynslóða á að komast eðlilega út í lífið!
Út í annað.. erum við virkilega svona stórtæk að þurfa að eiga allt það flottasta og bestasta og ekki nóg með það. dýrasta...
Í fréttum um daginn kom það í ljós að við vorum búin að kaupa x mikið magn af einhverjum Range Rover jeppum.. sem kosta ég veit ekki hvað margar milljónir hver. Notabene, Rússar hafa keypt sama magn..
Í Rússlandi búa næstum 143 milljónir manns.
Á Íslandi búa eru rúmlega 300. þús..
Mikill munur, en við kaupum jafn mikið af ógeðslega óþarflega dýrum bílnum og þetta mjög svo fleirra fólk.
Við erum svo sannalega ekki klárasta fólkið í heiminum.
Rómantík...
Íslenskir karlmenn eru þeir órómantískustu í heimi.. Á móti kemur að íslenskir kvenmenn eru ómótækilegir fyrir rómantík.. ég hef rætt þetta við vinkonur mínar.. og við komumst að þeirri sorglegu niðurstöðu að ef við heyrum eitthvað fallegt sagt við okkur, eða þið vitið, eitthvað rómó í gangi.. þá fáum við kjánahroll..
Ef okkur er hrósað.. þá er það fyrsta sem okkur dettur í hut "hvað er fjandanum er gaurinn að pæla, er eitthvað að honum eða"
This aint healthy!
Karlmenn nýtímans eru aldir upp við það að þeir komast upp með að fara heim með gellu, nota hana og henda henni. Stelpur líka, gera þetta við gaura líka..
Afhverju f0rum við illa með hvort annað ? Rómantíkusar mundu ekki gera þetta =) Og það versta er að okkur finnst þettta mjög eðlilegt! it isnt..
Hvað varð um það .. fyrir nokkrum öldum, þegar fólk átti að fara ónotað í brúðarsængina. hehe! Ekki misskilja, ég aðhyllist ekki nunnulífi eða eitthvað þannig.. just a tought.
En, ég ætla að fara að herða mig í bloggi, og skrifa meira seinna, þetta er nóg í bili!
og já, by the way,, Gleðilegt ár :*
Kær Kveðja.
Steinunn
Myndir frá Flórída

Froskurinn minn

Faðir minn og Bróðir

Eðlan sem átti heima í steinskónum fyrir utan húsið okkar

Ofboðslega kynþokkafullur Bandaríkjamaður (ég tók þessa samt ekki)
Þurfti aðeins að minnka myndirnar til að þær kæmust fyrir á síðunni
Takk fyrir mig :D
